Aðalskipulag Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2025-2040
Tillaga á vinnslustigi til kynningar og umsagnar til og með 6. ágúst 2025
Umhverfis- og skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti þann 21. maí 2025 að hefja kynningu á aðalskipulagstillögu á vinnslustigi í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga. Framlögð gögn má nálgast í Skipulagsgátt (https://skipulagsgatt.is/) en þau eru: Skipulagsgreinargerð, forsendu- og umhverfismatsskýrsla og aðalskipulagsvefsjá (https://geo.alta.is/hornafjordur/ask/ ). Sjá einnig verkefnisvefinn https://www.hornafjorduradalskipulag.is/
Kynningarfundir og opin hús um aðalskipulagstillöguna:
- Fjarfundur um þéttbýlið á Höfn verður 18. júní kl. 15-17.
- Fjarfundur um dreifbýlið verður 19. júní kl. 15-17.
- Opið
hús umhverfis- og skipulagsfulltrúa verður
- í Hofgarði 19. júní kl. 9-13
- í Holti 24. júní kl 9-16
- á Höfn 26. júní kl 9-16
Tenglar á fjarfundina verða settir á vef og Facebook-síðu sveitarfélagsins. Upptökur af fundunum verða aðgengilegar þar eftir á.
Ábendingum og umsögnum um aðalskipulagstillöguna skal skila í gegnum Skipulagsgátt eða til adalskipulag@hornafjordur.is