Álagning fasteignagjalda 2018

30.1.2018

Álagningu fasteignagjalda í Sveitarfélaginu Hornafirði fyrir árið 2018 er nú lokið. Álagningarseðlar eru birtir rafrænt á vefsíðunni www.island.is undir „Mínar síður“ og er innskráning með veflykli ríkisskattstjóra eða rafrænum skilríkjum.

Álagningu fasteignagjalda í Sveitarfélaginu Hornafirði fyrir árið 2018 er nú lokið. Álagningarseðlar eru birtir rafrænt á vefsíðunni www.island.is undir „Mínar síður“ og er innskráning með veflykli ríkisskattstjóra eða rafrænum skilríkjum. Álagningarseðlar hafa verið sendir til fasteignaeigenda sem eru 67 ára og eldri og til fyrirtækja.

Kröfur vegna fasteignagjalda birtast sem fyrr í heimabanka greiðanda. Gjalddagar eru átta, sá fyrsti 1. febrúar. Greiðsluseðlar verða eingöngu sendir til þeirra sem hafa óskað sérstaklega eftir því. Þeir sem óska eftir að fá álagningar- eða greiðsluseðla senda á pappírsformi eru beðnir að hafa samband við skrifstofu sveitarfélagsins í síma 470 8000 eða á afgreidsla@hornafjordur.is.

Við álagningu er reiknaður afsláttur á fasteignaskatt hjá elli- og örorkulífeyrisþegum og miðað er við allar skattskyldar tekjur samkvæmt skattframtali. Ekki er þörf á að sækja sérstaklega um þennan afslátt.

Á heimasíðu sveitarfélagsins má sjá álagningarreglur 2018 ásamt reglum um afslátt fasteignaskatts. Skrifstofa sveitarfélagsins veitir jafnframt allar nánari upplýsingar.

Fjármálastjóri