Álagning fasteignagjalda 2023

6.2.2023

Álagningu fasteignagjalda í Sveitarfélaginu Hornafirði fyrir árið 2023 er nú lokið. Álagningarseðlar eru birtir rafrænt á vefsíðunni www.island.is og sendir í bréfpósti til fasteignaeigenda sem eru 70 ára og eldri og til fyrirtækja. Kröfur vegna fasteignagjalda birtast sem fyrr í heimabanka greiðanda. Ekki er veittur staðgreiðsluafsláttur af fasteignagjöldum. 

Gjalddagar eru 11, sá fyrsti 1. febrúar. Greiðsluseðlar verða eingöngu sendir til þeirra sem hafa óskað sérstaklega eftir því. Þeir sem óska eftir að fá álagningar- eða greiðsluseðla senda á pappírsformi eru beðnir að hafa samband við skrifstofu sveitarfélagsins í síma 470 8000 eða á afgreidsla@hornafjordur.is.

Við upphafsálagningu er afsláttur á fasteignaskatt hjá elli- og örorkulífeyrisþegum reiknaður til bráðabirgða miðað við tekjuárið 2021. Ekki er þörf á að sækja sérstaklega um þennan afslátt. Miðað er við allar skattskyldar tekjur samkvæmt skattframtali og sameiginlegar tekjur hjóna og samskattaðs sambýlisfólks. Þegar staðfest afrit af skattframtali vegna tekna ársins 2022 liggur fyrir um mitt ár 2023 verður afslátturinn endurskoðaður og leiðréttur sem getur leitt til inneignar eða skuldar.

Á heimasíðu sveitarfélagsins má sjá álagningarreglur 2023 og reglur um afslátt fasteignaskatts. Fjármálasvið sveitarfélagsins veitir jafnframt frekari upplýsingar.

Ólöf I. Björnsdóttir,

fjármálastjóri.