• Alzheimersamtokin2

Alzheimersamtökin með fræðslu á Höfn

9.4.2026

Eitt af meginmarkmiðum Alzheimersamtakanna er að auka þekkingu og dýpka skilning á þeim áskorunum sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir. Þau halda því reglulega fræðsluerindi víðsvegar um landið.

Nú er förinni heitið á Höfn í Hornafirði.

Heilabilun og samskipti
Þriðjudaginn 14. apríl næstkomandi kl. 17:00 verður haldið fræðsluerindi undir heitinu Heilabilun og samskipti í Nýheimum sem er öllum opið.

Þeir sem mæta kynnast starfsemi samtakanna, öðlast skilning á heilabilun og hvernig megi bregðast við breyttum aðstæðum. Þá verður farið yfir leiðir til að auðvelda samskipti og hugmyndir fyrir ánægjulegar samverustundir reifaðar.

Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri og Ásta Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi Alzheimersamtakanna sjá um fræðsluna. Í ferð sinni til Hafnar verða þær einnig með sérstaka fræðslu fyrir fagfólk og starfsfólk sundlaugarinnar.

Aðgangur er ókeypis.

Nánari upplýsingar veitir

Thelma Jónsdóttir,
fræðslustjóri Alzheimersamtakanna
thelma@alzheimer.is
sími 86 86 056