Ársreikningur 2025:
Rekstrarniðurstaða A og B hluta jákvæð um 535 m.kr.
Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir árið 2025 hefur nú verið lagður fram og staðfestir það sem við höfum séð á síðustu árum – rekstur sveitarfélagsins er traustur, stöðugur og í góðu jafnvægi.
Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 535 milljónir króna, sem er umtalsvert betri niðurstaða en áætlanir gerðu ráð fyrir. Það er sérstaklega ánægjulegt í ljósi þess að á sama tíma höfum við verið í mikilli uppbyggingu og eflt þjónustu við íbúa.
Tekjur og rekstur
Heildartekjur sveitarfélagsins námu 4.744
milljónum króna á árinu, þar af 4.276 milljónir í A hluta. Reksturinn hefur því
burði til að standa undir þeirri þjónustu og uppbyggingu sem sveitarfélagið
sinnir.
Laun og launatengd gjöld eru sem fyrr stærsti útgjaldaliðurinn, enda er starfsemi sveitarfélagsins fyrst og fremst þjónusta við fólk. Rekstrarkostnaður jókst á milli ára samhliða aukinni þjónustu og uppbyggingu.
Sterk fjárhagsstaða
Eigið fé sveitarfélagsins nam 7.728 milljónum
króna í árslok 2025 og hefur styrkst milli ára. Fjárhagsstaðan er því mjög
sterk og sveitarfélagið vel í stakk búið til að takast á við framtíðarverkefni.
Sjóðstreymi er einnig öflugt. Veltufé frá rekstri var um 974 milljónir króna í A og B hluta, sem er lykiltala sem segir okkur hversu mikið fé reksturinn skilar til að standa undir fjárfestingum, greiða niður skuldir og mæta ófyrirséðum áskorunum. Þetta er einfaldlega það svigrúm sem við höfum til að halda áfram að byggja upp samfélagið án þess að treysta á lántöku.

Framkvæmdir við nýja verslunarmiðstöð ganga vel. Aukin samkeppni á matvörumarkaði er eitt mikilvægasta skrefið til að bæta kjör íbúa og efla þjónustu.
Fjárfestingar og framkvæmdir
Á árinu 2025 fjárfesti sveitarfélagið í
innviðum fyrir um 900 milljónir króna. Það er veruleg fjárfesting, þó hún sé
undir áætlun.
Helstu skýringar á því eru að framkvæmdir við íþróttahús hafa ekki enn hafist og að uppbygging í nýju Hagahverfi gekk hægar en gert var ráð fyrir – en þar er nú unnið af fullum krafti í gatnagerð.
Þá ber einnig að nefna að í fjárhagsáætlun ársins var gert ráð fyrir 250 milljónum króna vegna byggingar nýs hjúkrunarheimilis, en síðla árs náðist mikilvægur samningur við ríkið sem yfirtekur verkið að fullu.
Hér má sjá að vinna við
gatnagerð í nýju Hagahverfi er í fullum gangi – nýtt íbúðahverfi er mikilvægt
skref í að tryggja nægt framboð að fjölbreyttum lóðum.
Að losna frá fjárhagslegri skuldbindingu –
gríðarlega mikilvæg niðurstaða
Allir vita að verkefnið um nýja
hjúkrunarheimilið hefur gengið brösulega og kostnaður farið langt fram úr
áætlunum. Að ná samningi sem losar sveitarfélagið undan fjárhagslegri
skuldbindingu er mjög stórt skref sem styrkir fjárhagsstöðu okkar til framtíðar
og skapar aukið svigrúm til annarra mikilvægra verkefna.
Framkvæmdir við hjúkrunarheimilið ganga nú vel og gert er ráð fyrir að fyrstu íbúar flytji inn í sumar. Í kjölfarið verða framkvæmdir við endurbætur á eldri hluta hússins boðnar út, sem er mikilvægur áfangi í heildaruppbyggingu þjónustu við eldri íbúa.
Það er jafnframt sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu margir hornfirskir iðnaðarmenn hafa komið að verkinu síðustu mánuði – og hversu mikilvægt það er að uppbygging sem þessi skili sér beint inn í samfélagið okkar.
Skuldir og framtíðarsvigrúm
Skuldir sveitarfélagsins hafa lækkað á
kjörtímabilinu og eru mjög hóflegar miðað við umfang fjárfestinga síðustu ára.
Þetta er mikilvæg staða – sérstaklega þegar horft er til þess að sveitarfélagið
hefur fjárfest verulega í innviðum án þess að þurfa að taka lán.
Aðeins eitt lán var tekið á kjörtímabilinu, 250 milljónir króna, á þeim tíma sem framkvæmdir við Sindrabæ og viðbyggingu við leikskólann stóðu sem hæst.
Skuldahlutfall sveitarfélagsins hefur lækkað verulega og er nú 53%, en skuldaviðmið samkvæmt reglugerð er 24%. Langtímaskuldir nema um einum milljarði króna og er sveitarfélagið því í afar sterkri stöðu til áframhaldandi uppbyggingar á næstu árum.

Skuldahlutfall sveitarfélagsins hefur farið úr 70% í 53% á fjórum árum.
Niðurstaða
Ársreikningur 2025 sýnir skýrt að rekstur
sveitarfélagsins er sterkur og stöðugur. Við erum að skila jákvæðri niðurstöðu,
fjárhagsstaðan er traust og við höfum svigrúm til að halda áfram uppbyggingu.
Verkefnin sem við höfum ráðist í og þau sem framundan eru snúast öll um eitt: að gera sveitarfélagið okkar að enn betra samfélagi til að búa og starfa í.
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri

