• Barnamenning_mynd

Barnamenningardagar á Suðurlandi haldnir í fyrsta skipti

20.4.2026

Barnamenningardagar á Suðurlandi fara fram dagana 22.–26. apríl næstkomandi, í kringum sumardaginn fyrsta. Þá verður líf og fjör víðs vegar um landshlutann þar sem börn og fjölskyldur fá tækifæri til að njóta fjölbreyttrar menningar og taka virkan þátt í skapandi starfi.

Barnamenningardagar á Suðurlandi haldnir í fyrsta skipti
Barnamenningardagar á Suðurlandi fara fram dagana 22.–26. apríl næstkomandi, í kringum sumardaginn fyrsta. Þá verður líf og fjör víðs vegar um landshlutann þar sem börn og fjölskyldur fá tækifæri til að njóta fjölbreyttrar menningar og taka virkan þátt í skapandi starfi. Hátíðin byggir á sterkri hefð, en í ár er sérstök áhersla lögð á að börn og ungmenni séu í forgrunni sem hugmyndasmiðir og listamenn. Lögð er áhersla á að þau fái að skapa, upplifa og njóta menningar á sínum eigin forsendum.

Hlekkur á kynningarmyndband

Sveitarfélög um allt Suðurland taka þátt í hátíðinni og móta sína eigin dagskrá, sem tryggir að viðburðirnir endurspegli nærumhverfi barna á hverjum stað. Á dagskrá eru meðal annars vinnustofur, sýningar, tónlist, ljósmyndun og fjölskylduviðburðir þar sem gleði og sköpun ráða ríkjum. Sameiginlegt verkefni hátíðarinnar í ár er ljósmyndaverkefnið „Suðurland með augum barna“, þar sem börn eru hvött til að fanga sitt umhverfi á mynd og veita þannig innsýn í upplifun þeirra á samfélagi, náttúru og daglegu lífi.

Í Hornafirði verður einnig boðið upp á fjölbreytta dagskrá í tilefni daganna, þar sem börn geta meðal annars tekið þátt í Fab Lab námskeiði, listasmiðjum með Krakkaklúbbnum Kóbru, tekið þátt í vegglistaverki í félagsmiðstöðinni Þrykkjunni og notið umhverfistengdrar dagskrár á bókasafninu. Þá verður haldin ljósmyndakeppni undir yfirskriftinni „Hornafjörður með augum barna“, þar sem börn og ungmenni keppa í þremur aldursflokkum og eiga kost á verðlaunum, en bestu myndirnar fara áfram í sameiginlega stafræna sýningu fyrir allt Suðurland.

Barnamenningardagar eru því kjörið tækifæri fyrir fjölskyldur til að njóta samveru, sköpunar og menningar og eru allir hvattir til að fylgjast með dagskránni og taka þátt í hátíðinni.

Dagskra-Heilsida-Eystrahorn