• 14

Barnastarf Menningarmiðstöðvarinnar 2025

4.6.2025

Í fjölda ára hefur Menningarmiðstöð Hornafjarðar borðið börnum í sveitarfélaginu að taka þátt í Barnastarfi Menningarmiðstöðvarinnar sem fram fer á sumrin. Árið í ár er engin undantekning og hefur Menningarmiðstöðin skipulagt ferðir og allskonar skemmtilegar uppákomur fyrir börnin í sumar.IMG_3212

Barnastarfið fer fram á þriðjudögum kl.13 og tekur alla jafna 2-2 ½ klst. Ávallt verður hist á bókasafninu í Nýheimum og ferðirnar enda á sama stað.

Ferðirnar eru fyrir börn á grunnskólaaldri sem lokið hafa 1. bekk. Yngri börn eru velkomin með í ferðirnar en þá biðjum við foreldra eða forráðamann um að fylgja barninu.

Í ár ferðumst við um víðan völl, bæði innanbæjar og utan og fáum til samstarfs við okkur fjölda fyrirtækja og einstaklinga sem öll stefna að því að gera sumarið ógleymanlegt fyrir börnin.

Skráning fer fram á netfanginu afgreidslammh@hornafjordur.is og lýkur ávallt sólarhring fyrir ferð eða kl.13 á mánudögum. Fyrir fyrstu ferð barns í sumar þarf að fylla út upplýst samþykki þar sem gefið er formlegt leyfi fyrir því að barnið taki þátt í Barnastarfinu.

17Eins og gefur að skilja þarf að fylgjast með veðurspá og börnin koma klædd eftir veðri þvi mikið er dvalið utandyra. Þá eru börnin beðin um að koma með nesti.

Síðast en ekki síst þá er vert að taka fram að frítt er í allar ferðir á vegum Menningarmiðstöðvarinnar.

Við hlökkum til að skemmta okkur með ykkur í sumar .

Auglysing-dagskra-isl