Breytingar í sorpmálum

21.7.2017

Sveitarfélagið Hornafjörður hefur samið, eftir útboðsferli, við Íslenska Gámafélagið um sorphirðu, rekstur gámastöðvar og urðunarstaðar í sveitarfélaginu. Áhersla verður lögð á enn betri flokkun og endurvinnslu í samræmi við stefnu bæjarstjórnar og umhverfisstefnu sveitarfélagsins. Samningurinn tekur gildi þann 1. ágúst n.k.

Framundan eru nokkrar breytingar á sorpmálum sveitarfélagsins. Þjónusta við íbúa verður aukin með frekari flokkun en þann 1. október verður hólf fyrir lífrænan heimilisúrgang  sett í almennu tunnuna við öll heimili auk þess sem tunnan fyrir almenna sorpið verður stækkuð og losunardögum fækkað. Í tunnuna fyrir lífræna úrganginn fara allir matarafgangar sem verða að moltu sem verður aðgengileg fyrir íbúa sveitarfélgsins.  

Þann 1. október nk. fá íbúar síðan klippikort sem gildir að gámasvæði sveitarfélagsins til að losa sig við það efni sem ekki fer eða kemst í heimilistunnur. Klippt verður fyrir gjaldskyldan úrgang á meðan tekið verður á móti ógjaldskildum úrgangi án greiðslu. Ef klippikortið dugar ekki út árið verður hægt að kaupa auka kort.

Fyrirtæki eru undanskilin útboðinu og greiða því samkvæmt gjaldskrá eins og áður.

Íslenska Gámafélagið og Sveitarfélagið munu standa fyrir kynningu þegar helstu breytingar eiga sér stað. Þá verða frekari upplýsingar aðgengilegar á heimasíðu sveitarfélagsins.