• Sveitarfélagið Hornafjörður

Breytingar varðandi fjárhagsaðstoð

26.6.2025

Frá og með næstu mánaðarmótun mun umsóknarferli fjárhagsaðstoðar hjá sveitarfélaginu taka breytingum. Áfram verður hægt að sækja um með því að skrá sig inn á íbúagáttina og finna þar umsókn um fjárhagsaðstoð. Umsóknin mun svo leiða umsóknaraðila inná sameiginlegan umsóknarvef sveitarfélaganna á www.island.is. Einnig verður hægt að fara beint inná vef fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga og sækja um þar.

Um er að ræða samræmt kerfi sem þróað hefur verið af Sambandi Íslenskra sveitarfélaga sem auðveldar bæði umsækjendum og sveitarfélögunum ferlið. Kerfið, sem kallast Veitur, er tengt öðrum helstu stofnunum sem þurfa að veita upplýsingar svo sem Skattinum og Þjóðskrá.

Þá voru reglur sveitarfélagsins um fjárhagsaðstoð uppfærðar í samræmi við þessar breytingar og voru þær samþykktar á síðasta bæjarstjórnarfundi og taka gildi 1.7.2025. 

Samhliða þessum breytingum er einnig gerð sú grunn breyting að umsækjendur þurfa nú að sækja um fyrir 20. hvers mánaðar til þess að fjárhagsaðstoð verði greidd út á réttum tíma hver mánaðarmót. Ef umsókn best eftir 20. hvers mánaðar er fjárhagsaðstoð ekki greidd út fyrr en 15. þess mánaðar sem umsókn gildir fyrir.