Brynja Dögg ráðin umhverfis- og skipulagsstjóri

25.3.2020

Brynja Dögg Ingólfsdóttir var ráðinn umhverfis- og skipulagsstjóri sveitarfélagsins eftir ráðningaferli hjá Capacent. 

Brynja Dögg hefur tekið til starfa sem umhverfis- og skipulagsstjóri hjá Sveitarfélaginu Hornafirði. Brynja hefur lokið BSc í umhverfisskipulagi frá Landbúnaðarháskóla Íslands og er að ljúka mastersnámi í skipulagsfræðum við sama háskóla. Auk þess hefur Brynja lokið einu ári í landupplýsingakerfum
við Háskólann í Lundi í Svíðþjóð. 

Síðustu 13 ár hefur hefur Brynja starfað við skipulagsgerð, umhverfismat áætlana og mat á umhverfisáhrifum framkvæmda hjá EFLU og Landform.

Brynja hefur í starfi sínu öðlast víðtæka reynslu af skipulagsmálum í gegnum
skipulagsvinnu fyrir ólík sveitarfélög og fyrirtæki ásamt góðri þekkingu á laga- og
stjórnsýsluumhverfinu sem unnið er eftir í skipulags-, umhverfismats- og
leyfismálum. Þá er hún einnig vel að sér í umhverfismálum og mati á
umhverfisáhrifum bæði í gegnum nám og störf. 

Brynja tók til starfa 1. mars og bjóðum við hana velkomna til starfa.