• Sveitarfélagið Hornafjörður

Endurbætur á jarðhæð ráðhússins – breytingar á aðgengi og þjónustu

4.5.2026

Endurbætur standa nú yfir á jarðhæð ráðhússins. Vegna framkvæmdanna hefur móttaka verið flutt tímabundið á aðra hæð hússins. Gestir eru beðnir um að nýta sér aðalinngang byggingarinnar, þar sem annar aðgangur er lokaður á meðan á framkvæmdum stendur.

Jafnframt verður Svavarssafn lokað á meðan framkvæmdir standa yfir.

Áætlað er að framkvæmdum ljúki í haust. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum við sýndan skilning á meðan unnið er að endurbótum.