Fjárhúsavík lokuð

12.10.2020

Vegna slæmrar umgengni í Fjárhúsavík er gripið til þeirra ráðstafana  að loka fyrir alla úrgangslosun í Fjárhúsavík á Ægissíðu. 

Svæðið verður lokað frá og með þriðjudeginum 13. október 2020.

Bent er á að Íslenska Gámafélagið tekur á móti gjaldfrjálsum og gjaldskyldum úrgangi, þar með talið garðaúrgangi, múrbroti og jarðvegi

Opnunartími söfnunarstöðvar er:

  • Mánudagar: 13:00-17:00
  • Þriðjudagar: 15:30-17:30
  • Miðvikudaga: 15:30-17:30
  • Fimmtudaga: 15:30-17:30
  • Laugardaga: 11:00-15:00

Gjaldskrá söfnunarstöðvar.

Nánari upplýsingar varðandi þjónustu Íslenska Gámafélagsins má fá hjá Einari verkstjóra í síma 840-5710.

Þurfi einstaklingar að losa mikið magn af garðaúrgangi má hafa samband við Áhaldahúsið á opnunartíma í síma 895-1473.

Lokun Fjárhúsavíkur verður endurskoðuð fyrir næsta sumar.

Með kveðju,

Starfsfólk Sveitarfélagsins Hornafjarðar