• Myndasyning-2025

Fjölbreytileikavikan á Menningarmiðstöð Hornafjarðar 2026

24.3.2026

Nú er hin frábæra fjölbreytileika vika hafin og Bókasafn Menningarmiðstöðvarinnar hefur skipulagt þrjá mismunandi viðburði af því tilefni. 

Við riðum á vaðið um síðustu helgi og héldum viðburðinn KVENNABORÐIÐ síðastliðinn laugardag, sem byggt er á sambærilegu verkefni W.O.M.E.N. – samtökum kvenna af erlendum uppruna á Íslandi. Eirný Valsdóttir hélt utan um viðburðinn fyrir okkar hönd og fór hann fram úr okkar björtustu vonum. Mætingin var góð og umræðurnar enn betri. Við höfum strax ákveðið að endurtaka leikinn þann 25.apríl n.k. og vonandi verða þetta mánaðarlegir viðburðir um ókomna tíð.

Kvennabordid-mynd

Næstkomandi fimmtudag, 26. mars kl.20, verður annar viðburðurinn okkar haldinn í tilefni af Fjölbreytileika vikunni en það er kynning á bókinni Fröken Dúlla sem fjallar um Jóhönnu Knudsen sem kölluð var Dúlla af ástvinum sínum, en hún var alræmd vegna rannsókna hennar á siðferðisástandinu í Reykjavík á árum seinni heimsstyrjaldar. Nærgöngular yfirheyrslur hennar yfir stúlkum sem grunaðar voru um samneyti við erlenda hermenn hafa verið kallaðar umfangsmestu persónunjósnir Íslandssögunnar.

Frk-Dulla-event-banner

Í kjölfar bókakynningarinnar verður boðið upp á umræður með Kristínu Svövu, sagnfræðing og höfund bókarinnar, þar sem við horfum til baka á viðbrögðin við „ástandinu“. Hverjir voru það sem knúðu bæði umræðuna og aðgerðirnar áfram og hverjar voru forsendurnar? Má segja að í grunninn hafi verið um að ræða neikvæða umræðu um kynfrelsi kvenna en líka tilraunir í barnaverndarmálum á meðan það kerfi var á frumstigi?

Því miður hefur kvenfrelsi og fjölbreytileikinn hafa átt undir högg að sækja í heiminum í dag og ekki síður á Íslandi. Okkur á Menningarmiðstöðinni þótti því vert að skoða söguna og skoða hvort við getum ekki lært af henni.

Síðasta viðburð Menningarmiðstöðvarinnar í Fjölbreytileikavikunni þarf vart að kynna fyrir Hornfirðingum en síðustu ár höfum við sett upp ljósmynda studio í afgreiðslu bókasafnsins þar sem gestum og gangandi er boðið að fá tekna af sér andlitsmynd. Markmiðið er að sýna hversu frábær, falleg og fjölbreytt við erum hér í Hornafirði. Ljósmyndirnar munu svo prýtt veggi Nýtorgs í Nýheimum næstu vikur eftir að Fjölbreytileikavikunni lýkur.

Í lokin viljum við minna á að opnunartími bókasafnsins er eftirfarandi:

Mánudagur – fimmtudagur kl.10-17
Föstudagur kl.11-15
Laugardagur kl.11-15

Við hlökkum til að taka á móti ykkur nú í Fjölbreytileikavikunni sem og alla aðra daga.Starfsfólk bókasafns Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar