• Fjolbreytileikavika_mynd_2

Fjölbreytileikavikan, kærleikurinn sameinar okkur í mars

6.2.2026

Í Fjölbreytileikavikunni í ár, sem að þessu sinni dreifist yfir allan marsmánuð, verður kærleikurinn í fyrirrúmi.

Sveitarfélagið Hornafjörður er ríkt af ólíkum einstaklingum, menningu, tilfinningum og lífssögum og markmið Fjölbreytileikavikunnar er að efla þennan fjölbreytileika enn frekar. Fjölbreytileikavikan er samfélagsverkefni þar sem við tökum okkur tíma til að fræðast, hlusta og fagna þeim fjölbreytileika sem býr í samfélaginu okkar.

Í ár verður það með áherslu á kærleikann en í honum felst m.a.: 

Umhyggja og virðing
Að bera hag annarra fyrir brjósti, sýna tillitssemi og virða tilfinningar, mörk og þarfir annarra.

Samkennd og skilningur
Að geta sett sig í spor annarra, hlustað og reynt að skilja án þess að dæma.

Vilji til að láta gott af sér leiða
Kærleikur birtist oft í verkum – hjálpsemi, stuðningi, fyrirgefningu og hlýju.

Óeigingirni (að einhverju marki)
Ekki endilega að gleyma sjálfum sér, heldur að jafna eigin þarfir og þarfir annarra á heilbrigðan hátt.

Þolinmæði og tryggð
Kærleikur er ekki alltaf auðveldur; hann krefst stundum þolinmæði, heiðarleika og skuldbindingar.

Með þessari grein fylgir hvatning til allra íbúa að taka þátt í kærleiksmánuðinum og efla samfélagið okkar enn meira og gera það enn betra.

Einstaklingar, heimili, félagasamtök, skólar, stofnanir og vinnustaðir - allir geta tekið þátt. Um að gera að nota hugmyndaflugið og sköpunargáfuna til að virkja kærleikann innra með okkur og meðal okkar.

Þegar nær dregur verður sagt meira frá því sem verður um að vera hjá einstaka aðilum og viðburðum sem sveitarfélagið og stofnanir þess standa fyrir. Þangað til eru allir sem sjá, heyra eða finna fyrir kærleika í kringum sig hvattir til að pósta myndum á samfélagsmiðla. Deildu efni með myllumerkinu #fjolbreytileikavika og merktu @svhornafjordur.is

Fjolbreytileikavika_mynd_2