Fjölmenningarráð hlýtur styrk frá Þjóðminjasafni og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti
Íslensk sundlaugamenning var nýlega staðfest á lista UNESCO yfir áþreifanlega menningararfleið heims, og í tilefni þess auglýsti menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands, eftir umsóknum til viðburðarhalds tengdum sundlaugum landsins.
Sótti fjölmenningarráð sveitarfélagsins um styrk fyrir samvinnuverkefni með FAS og Sundlaug Hafnar, en var hugmyndin að tengja viðburðinn frekar við fjölmenningarbíó, sem fara aftur af stað í haust.
Bárust 46 umsóknir og fengu 22 verkefni styrkinn að þessu sinni, meðal annars þetta verkefni. Stefnt er á að halda viðburðinn í september, og verður þá sýnd íslensk kvikmynd meðan gestir geta spókað sig ofan í sundlauginni og heitu pottunum. Einnig er stefnt á að bjóða upp á þjóðlegt snarl áður en fólk heldur ofan í.
Frekari upplýsingar munu birtast þegar nær dregur.
Fyrir hönd fjölmenningarráðs,
Anna Birna Elvarsdóttir, verkefnastjóri fjölmenningar-, inngildingar- og jafnréttismála.

