• Olduslod-gengid-yfir-Svinafellsa

Formleg opnun göngu- og hjólastígs í Öræfum

19.6.2025

Mikil gleðistund var á þjóðhátíðardaginn 17. júní í Öræfum þar sem bæði var haldið upp á þjóðhátíðardaginn ásamt því að opnaðar voru formlega tvær gönguleiðir í Öræfum sem er hluti af Jöklaleiðinni. Frábær hópur fólks sem kom að bæði gerð, hönnun og opnun leiðarinnar ásamt landeigendum voru viðstödd opnunina. Nokkrir félagar Öræfingakórsins leiddu fjöldasöng að gefnu tilefni við mikinn fögnuð.

Einstök náttúra sveitarfélagsins og víðfermt útsýni yfir jökla, lón, kletta, fjöll og fjörur einkenna þessa mögnuðu gönguleið sem Jöklaleiðin er og er þetta frábær viðbót við aðrar gönguleiðir í náttúru Íslands.

Sigrun-fulltrui-sveitarfelagsins-thjodgardsins-og-UMFO

Sigrún Sigurgeirsdóttir flutti ávarp

Sigrún Sigurgeirsdóttir, sem er bæði formaður Umgmennafélags Öræfa og Atvinnu- og menningarmálanefndar sveitarfélagsins ávarpaði samkomuna þar sem hún sagði meðal annars:

„ Kæru gestir! Verið öll hjartanlega velkomin á þessa opnunarhátið.
Það voru heimamenn í Svínafelli og Freysnesi sem höfðu frumkvæði að því að láta leggja þennan göngustíg. Hluti leiðarinnar er í Vatnajökulsþjóðgarði og þess vegna kom hann inn í samstarfið. Hugmyndinni var tekið vel af Sveitarfélaginu Hornafirði og var sótt um styrk til Framkvæmdasjóðs Ferðamannastaða til að fjármagna verkið. Stígurinn hlaut nafnið Ölduslóð því hann liggur við jökulöldur sem eru framan við Svínafellsjökulinn.

Margir lögðu hönd á plóg til að koma hugmyndinni í framkvæmd. Landeigendur veittu leyfi fyrir stígnum á þeirra landi, Svavar Sigurjónsson reiknaði út burðarþol göngubrúnna, Ræktunarsamband Flóa- og Skeiða boraði fyrir festingum undir brýrnar, Gunnar Gunnlaugsson (Mikael ehf.) sá um smíði á göngubrúnum, Haukur Gíslason (Jökulfell ehf.) sá um að leggja sjálfan stíginn, Helgi Kjartansson sá um frágang af ýmsu tagi og Veiðarfæragerð Skinneyjar Þinganess gerði hliðarnetin í brýrnar. Það er alltaf hættulegt að telja upp þá sem koma að málum því auðvitað voru margir fleiri sem lögðu verkefninu lið“.

Olduslod-landeigendur

Fulltrúar landeigenda

Hlynur Axelsson arkitekt hélt vel utan um verkefnið og gætti þess að allt gengi upp til þess að hægt væri að opna leiðina á 17. júní.

Síðan var gengið eftir Ölduslóð og haldið áfram að hátíðasvæði í Svínafelli þar sem Sigrún, Svanhvít og Guðný f.h.UMFÖ höfðu undirbúið hefðbundin 17. júní hátíðarhöld. Farið var í leiki og Hólmfríður Guðlaugsdóttir og Halldóra Oddsdóttir reiddu fram grillaðar pylsur, kaffi, safa og kex. Að lokum var borin fram hátíðaísterta frá Önnu Maríu í Freysnesi.

Hátíðahöldin fóru vel fram og allir skemmtu sér vel. 

Olduslod-fulltruar-verktakaOlduslod-starfsfolk-og-sjalfbodalidar-opna-stiginn-i-SkaftafelliOlduslod-og-17.juni-Grilladar-pylsur-og-hatidaisterta