• Forsetakosningar 2020

Framlagning kjörskrár vegna forsetakosninga

15.6.2020

Kjörskrá mun liggja frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofunum í Ráðhúsi frá 16. júní til og með 26. júní á almennum skrifstofutíma.

Kjörskrá mun liggja frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofunum í Ráðhúsinu til og með föstudagsins 26. júní á almennum skrifstofutíma. Kjörskráin miðast við skráð heimilisfang hjá þjóðskrá 6. júní 2020. Athugasemdir við kjörskrána berist bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar á netfangið afgreidsla@hornafjordur.is .

Í Sveitarfélaginu Hornafirði eru fimm kjörstaðir í Hofgarði, Hrollaugstöðum, Holti, Mánagarði og Heppuskóla.

Í kjörstjórn eru Vignir Júlíusson, Zophonías Torfason og Reynir Gunnarsson.

Atkvæðagreiðsla utankjörfundar er hafin, kjósanda sem ekki getur kosið á kjördag er heimilt að greiða atkvæði utan kjörfundar.

Hægt er að kjósa hjá öllum sýslumönnum á landinu. Atkvæðagreiðsla á erlendri grundu er líka hafin á vegum utanríkisráðuneytisins.

Sjá nánar á kosning.is