• Augl-vegagerd2

Framlengdur umsóknarfrestur í Styrkvegasjóð Vegagerðarinnar

13.3.2026

Sveitarfélagið Hornafjörður vekur athygli íbúa á því að Vegagerðin hefur framlengt umsóknarfrest vegna styrkveitinga til samgönguleiða.

Umsóknarfrestur, sem áður var til 9. mars, hefur verið framlengdur til og með 23. mars næstkomandi.

Hverjir geta sótt um?
Umsækjandi hverju sinni skal vera veghaldari þeirrar samgönguleiðar sem nýtur styrks samkvæmt reglunum.

Um hvað er hægt að sækja?
Styrkveitingarnar fara eftir reglum nr. 1155/2011. Samkvæmt 3. gr. þeirra reglna er heimilt að veita styrki til eftirfarandi samgönguleiða:

  • a. Vega yfir fjöll og heiðar sem ekki teljast þjóðvegir.
  • b. Vega að bryggjum.
  • c. Vega að flugvöllum og lendingarstöðum sem ekki eru áætlunarflugvellir, en eru taldir upp í samgönguáætlun.
  • d. Vega að skíðasvæðum.
  • e. Vega að skipbrotsmannaskýlum.
  • f. Vega að fjallskilaréttum.
  • g. Vega að leitarmannaskálum.
  • h. Vega að fjallaskálum.
  • i. Vega innan uppgræðslu- og skógræktarsvæða.
  • j. Vega að ferðamannastöðum.

Kröfur til umsókna
Umsækjandi skal leggja fram greinargóða lýsingu á fyrirhugaðri framkvæmd. Í henni þarf meðal annars að koma fram:

  • Upplýsingar um staðsetningu.
  • Notkun vegarins.
  • Áætlaður kostnaður.
  • Önnur fjármögnun verksins.

Hvernig er sótt um? 
Allar nánari upplýsingar og rafræn umsóknareyðublöð er að finna á vef Vegagerðarinnar:

Umsóknir, beiðnir og styrkir – Vegagerðin