Framtíðarsýn í málefnum aldraðra
Í upphafi árs hófst mótun framtíðarsýnar í málefnum aldraðra í Sveitarfélaginu Hornafirði fyrir árin 2026-2034. Settur var á fót vinnuhópur sem leiðir vinnuna áfram og samanstendur hann af Ara Jónssyni og Guðbjörgu Jónsdóttur fyrir hönd Félags eldri Hornfirðinga, Ásgerði Gylfadóttur formanni öldungaráðs, Tinnu Rut Sigurðardóttur formanni velferðarnefndar og fulltrúa bæjarstjórnar, Írisi Heiðu Jóhannsdóttur aðalmann í velferðarnefnd og Kolbrúnu Rós Björgvinsdóttur hjúkrunarfræðing hjá HSU og verkefnastjóra heimahjúkrunar. Starfsmenn hópsins eru Skúli Ingibergur Þórarinsson sviðsstjóri velferðarsviðs og Sigríður Bessý Guðmundsdóttir stjórnandi stuðnings- og virkniþjónustu.
Hópurinn hittist þrisvar sinnum og undirbjó tvær vinnustofur sem haldnar voru núna í apríl og maí. Sú fyrri fór fram 22. apríl þar sem tekin voru fyrir þrjú þemu, dagþjónusta og félagsstarf, heilsuefling og heilbrigður lífsstíll og velferðartækni og öldrunarráðgjöf. Vinnustofan var vel sótt og unnið á þremur borðum þar sem allir höfðu eitthvað til málanna að leggja. Sigurjón Andrésson bæjarstjóri kom og opnaði vinnustofuna og lagði áherslu á að miklar væntingar væru til vinnunnar sem væri framundan. Berglind Magnúsdóttir verkefnastjóri hjá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu sem vinnur að verkefninu Gott að eldast, mætti á fundinn í gegnum fjarfundarbúnað og gerði grein fyrir aðgerðaáætlun Gott að eldast á landsvísu. Eftir fundina átti hún einnig gott samtal við starfsmenn velferðarsviðs og heilbrigðisþjónustu um samþætta þjónustu og dagþjónustu og svo með kjörnum fulltrúum.
Seinni vinnustofan var haldin 8. maí sem einnig var vel sótt. Aftur var unnið á þremur borðum að þremur þemum. Að þessu sinni voru þemun húsnæðismál, heimaþjónusta, heimahjúkrun og akstursþjónusta og upplýsingamiðlun og fræðsla. Virkilega flott vinna kom út úr þessum tveimur vinnustofa og mikilvæg gögn sem starfsmenn velferðarsviðs og vinnuhópurinn taka nú við, greina frekar og nýta við gerð framtíðarsýnar fyrir næstu tvö kjörtímabil.
Þá er stefnt að því að halda fund með íbúum í dreifbýli á næstu vikum sem verður auglýstur á næstunni. Þar verður farið yfir stöðuna á verkefninu og þá vinnu sem hefur þegar farið fram. Íbúum gefst þá kostur á að hafa áhrif á framvindu verkefnisins og tryggja að þarfir íbúa í dreifbýlinu komist til skila inn í aðgerðaáætlun. Sveitarfélagið er víðfeðmt og mikilvægt að allir hafi kost á því að búa sem lengst í heimahúsi. Það þýðir að mikilvægt sé að þjónustan geti lagað sig að ólíkum þörfum íbúa óháð búsetu. Enginn þekkir þessar þarfir betur en íbúar sjálfir og því gríðarlega mikilvægt að fá sem flesta að samtalinu til að tryggja að ólíkar raddir og hugmyndir komist til skila.
Með haustinu er stefnt að því að framtíðarsýn í málefnum aldraðra í Sveitarfélaginu Hornafirði fyrir árin 2026-2034 verði tilbúin og verður þá boðað til íbúafundar þar sem lokaafurðin verður kynnt.