Frístund í sumar
Frábært frístundasumar framundan í Hornafirði
Sumarið 2025 er handan við hornið og engin ástæða til að sitja auðum höndum! Höfn í Hornafirði iðar af lífi og býður upp á fjölbreytta og skemmtilega frístundadagskrá fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur. Hér er eitthvað við allra hæfi – hvort sem áhuginn liggur í íþróttum, leiklist, sköpun, hestum eða einfaldlega góðri samveru.
Leikur, list og lífsgleði!
Ungmennafélagið Sindri heldur áfram með sívinsælt Íþrótta og leikjanámskeið sitt alla virka daga í júní og ágúst frá kl. 09:00–12:00. Þar gefst börnum tækifæri til að leika sér, kynnast nýju fólki og skapa ógleymanlegar minningar. Þá verður íþróttastarf Sindra einnig í fullum gangi – með fótbolta, sundi, fimleika og fleiru.Sumarstundatöflu má hér https://umfsindri.is/wp-content/uploads/2025/05/Sumarstundatafla-2025.pdf
Íþróttafélagið Máni býður upp á kraftmiklar frjálsíþróttaæfingar á Mánavöllum tvisvar í viku – kjörin leið til að þjálfa hraða, styrk og liðsheild.
Leiklist og sköpun – tjáning og gleði!
Ágústa Margrét Arnardóttir, í samstarfi við Leikfélag Hornafjarðar, verður með leiklistarnámskeið og tískusmiðju. Þá mun Leikhópurinn Leik og Sprell heimsækja svæðið með líflegt og skapandi leiklistarnámskeið sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.Krakkaklúbbar og kraftur í sveitinni!
Krakkaklúbburinn Kóbra verður með fjölbreytta og spennandi dagskrá í sumar – fyrir ævintýragjarna og félagslynda krakka sem elska vináttu og fjör.Í Suðursveit heldur Ungmennafélagið Vísir úti öflugu starfi. Meðal annars verður boðið upp á opinn fótbolta á íþróttavellinum við Hrollaugsstaði á sunnudagskvöldum. Þar koma saman bæði ungir og eldri leikmenn – og skapast skemmtilegur vettvangur fyrir samskipti og hreyfingu, sérstaklega fyrir ungmenni og sumarstarfsfólk úr nágrenninu.
Félagsmiðstöðin Þrykkjan og frjáls frístund í Kátakoti
Félagsmiðstöðin Þrykkjan verður opin yfir sumarið með skemmtilegri dagskrá fyrir ungmenni sem vilja hittast, spjalla og njóta samveru í öruggu umhverfi. Í Kátakoti verður boðið upp á frjálsa frístund alla virka daga í júní og ágúst kl. 13:00–16:00 – opið og skapandi rými fyrir leik, gleði og félagskap.Taktu þátt – þú munt ekki sjá eftir því!
Það er ómetanlegt fyrir börn, ungmenni og bara alla, að fá tækifæri til að hreyfa sig, skapa, kynnast nýju fólki og njóta sumarsins í góðum félagsskap. Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að kynna sér dagskrána vel og skrá börnin í þá viðburði og námskeið sem henta áhugasviði þeirra og aldri.Nánari upplýsingar um skráningu og tímasetningar má finna á
heimasíðu sveitarfélagsins og hjá þeim félögum sem standa að starfinu.
Við hlökkum til að sjá ykkur í sumar – með sól í hjarta og bros á vör!
Endilega kynnið ykkur málið á : https://www.hornafjordur.is/thjonusta/ithrottir-og-tomstundir/sumarfristund/