Fyrirhugaðar lokanir vegna viðhalds á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum
See english version below
Viðhaldsvinna hefst á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði þann 18. ágúst. Brúin verður að mestu lokuð meðan á framkvæmdum stendur en verður opnuð fjórum sinnum á dag og á nóttunni. Framkvæmdin stendur yfir í eina til tvær vikur.
Unnið verður alla virka daga frá klukkan 08:00 á morgnana til klukkan 19:00 á kvöldin. Opið verður fyrir umferð yfir brúna á eftirfarandi tímum dag:
- 09:45-10:15
- 12:00-13:00
- 14:45-15:15
- 16:45-17:15
Brúin verður einnig opin fyrir umferð um helgar og virkum dögum frá kl. 19:00 að kvöldi til 08:00 að morgni næsta dags.
Vegagerðin hvetur vegfarendur til að sýna þolinmæði, fylgja merkingum og virða fyrirmæli á svæðinu.