Fyrstu skóflustungurnar fyrir nýtt hjúkrunarheimili

19.9.2022

Hátt í 250 manns mættu til að fagna þegar fyrstu skóflustungurnar að nýju hjúkrunarheimili á Höfn voru teknar. 

Heilbrigðisráðherra, elstu íbúar á Skjólgarði og elstu börnin á leikskólanum Sjónarhóli tóku saman fyrstu skóflustungurnar fyrir stærri Skjólgarð við hátíðlega athöfn í dag. Elstu konurnar í hópnum eru 99 ára og yngstu börnin 4 ára. 

Að lokinni athöfninni var boðið til samsætis í Ekru sal félagsstarfs aldraðra þar sem börn frá Tónskóla Austur- Skaftafellssýslu spiluðu á hljóðfæri. Seinna um daginn var einnig samsæti á Skjólgarði þar sem gestum var boðið til þess að fagna með íbúum.  

Verktakafyritækið Húsheild ehf. mun byggja nýja hjúkrunarheimilið, skrifað var undir samning við verktakann 22. júlí sl. Samkvæmt upplýsingum frá verktaka mun hann hefja framkvæmdir á næstu dögum og áætlað er að fystu íbúar í nýrri byggingu muni flytja inn í janúar 2024. 

Þetta mál hefur verið baráttumál lengi hér í Hornafirði og hafa margir lagt hönd á plóginn í baráttunni fyrir auknum lífsgæðum okkar heldri íbúa. 

Til hamingju Hornfirðingar.