• Gott-ged-mynd

Gott Geð viðburður

16.4.2026

Miðvikudaginn 8.april stóð velferðsviði Hornafjarðar og aðstandendahópurinn Gott bakland fyrir viðburðinum Gott Geð.

Nína, jafningi leiðtoga á LSH, Elín formaður samtakanna Sátt og Freymar formaður Trausts Kjarna voru með fræðslu um jafningjastuðning og mikilvægi þess að stuðla að fyrirbyggjandi aðgerðum í geðheilbrigðismálum.

Viðburðurinn var opinn öllum, en áhersla á að ná til framlínufólks og ná samvinnu milli stofnanna. Markmiðið er að við sem samfélag getum veitt stuðning samhliða eða áður en þörf er á aðstoð fagmanna.

Fundurinn tókst vel og var fjölmennur. Við sem skipum Gott bakland hér á Hornafirði erum afar þakklát fyrir alla þá sem gáfu sér tíma í að koma og sýna málefninu áhuga.

Við búum í félagsauðu samfélagi sem hefur allar forsendur til að skara framúr í geðrækt. Því er nauðsynlegt að hamra járnið meðan það er heitt og byrja strax á áframhaldandi vinnu í geðheilbrigðismálum og sjá hvernig við getum eflt okkur sem samfélag.

Í lokin langar mig að minna á fundi hjá Góðu baklandi sem er fyrir aðstandendur einstaklinga með geðrænar áskoranir og vilja þiggja samtal um fjölbreyttar áskoranir sem koma upp í samfélaginu okkar.

Næsti fundur verður auglýstur á næstunni.

Fyrir hönd velferðasviðsins og Gott bakland,
Sigrún Bessý Guðmundsdóttir,
Eyjólfur Guðmundsson.