Hlynur Pálmason byggir upp miðstöð skapandi lista og kvikmynda á Höfn

23.8.2019

Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar skrifaði undir leigusamning um Stekkaklett við Hlyn Pálmason í dag.

Metnaðarfull áform Hlyns um að byggja upp skapandi miðstöð lista og kvikmynda með undirbúnings- og eftirvinnslustúdíói hafa alla burði til að styrkja atvinnu- og menningarlíf í sveitarfélaginu auk þeirra námstækifæra sem verkefnið býður uppá fyrir íbúa sveitarfélagsins.

Í október 2018 var auglýst eftir tillögum um nýtingu og framtíðaráform fyrir Stekkaklett þar sem óskað var eftir aðilum sem kynnu að hafa áhuga á uppbyggingu og starfsemi á lóðinni. Tillaga Hlyns Pálmasonar var valin þar sem hún þótti uppfylla allar kröfur auglýsingarinnar og þótti fela í sér nýnæmi og menningartengsl fyrir samfélagið.

Undirskrift samnings á sama tíma og kvikmyndin „Hvítur hvítur dagur“ er forsýnd á heimavelli er mjög ánægjuleg og tengist hún Stekkakletti svo sterkt. Myndin hefur hlotið mikla velgengni um heim allan og samhliða hefur Hlynur Pálmason öðlast virðingu sem einn af hæfileikaríkustu ungu listamönnum Skandinavíu. Mun það án efa styrkja verkefnið við Stekkaklett. „Hvítur hvítur dagur“ verður forsýnd hér á Hornafirði á sunnudag þangað sem öllum íbúum sveitarfélagsins er boðið.

Sveitarfélagið sendir Hlyni og hans fólki til hamingju með kvikmyndina „Hvítur, hvítur dagur“ og með þá velgengni sem hún nýtur um allan heim

.