Höfn framtíðarinnar - Hvernig búsetuumhverfi viljum við?

4.10.2023

Bæjarstjórn býður til íbúafundar um mótun byggðar og umhverfis á Höfn. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 11. október kl. 17:00-19:30 í Vöruhúsinu.

Tilefni fundarins er yfirstandandi endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Fundinum er ætlað að fá fram sjónarmið og hugmyndir íbúa um framtíðarsýn og áherslur í skipulagi bæjarins. Sem upplegg að umræðum kynna skipulagsráðgjafar frá Alta greiningu og drög að markmiðum.

Allir sem hafa áhuga á framtíð bæjarins eru hvattir til að mæta! Boðið verður upp á súpu og brauð.

Upplýsingar um endurskoðun aðalskipulags má finna á vefnum hornafjordur.is/adalskipulag.