Íbúakosningu frestað!

4.5.2022

Bæjarráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar hefur tekið ákvörðun um að falla frá framkvæmd íbúakosningar um aðal- og deiliskipulag Innbæ á Höfn samhliða sveitarstjórnarkosningum 14. maí n.k.  

Ástæður frestunar eru ágallar á undirbúningi sem komu upp í tengslum við utankjörfundar atkvæðagreiðslu. Íbúakosningin þarf að fara fram innan árs frá því ósk um kosningu berst skv. 107 gr. sveitarstjórnarlaga en erindið barst sveitarfélaginu þann 24. ágúst 2021. 

Matthildur Ásmundardóttir, bæjarstjóri.