Regnbogastígur málaður á Höfn

23.6.2020

Margmenni mætti til að mála Regnbogastíg á göngustíg á móts við Ráðhúsið á Höfn. 

Regnbogastígurinn var málaður til heiðurs fjölbreytileika einstaklinganna í samfélaginu okkar föstudaginn 19. júní. Ungmennaráð og bæjarstjórn stóðu fyrir viðburðinum ásamt Vinnuskólanum. Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra aðstoðaði við að mála , hann var staddur hér til að skrifa undir barnasáttmála við sveitarfélagið.