• Dog-poop-pick-up-pollution

Kæru hundaeigendur!

26.2.2026

Það var heldur betur mikil ánægja hundaeigenda í fyrra þegar flottasta hundagerði landsins opnaði hér á Höfn. 

Þetta vakti ekki síður kátínu hjá litlu ferfætlingunum sem geta nú hlaupið um svæðið frjálsir brosandi út að eyrum.

Það kemur fyrir að einhverjir eigendur þessara glöðu hunda gleymi sér og þrífi ekki upp eftir hundana sína sem er alls ekki gott því hvorki hundarnir né eigendurnir vilja stíga í hundaskít þegar þeir far að leika á hundasvæðinu.

Það er tunna við innganginn á svæðinu og skýrar leiðbeiningar um hvernig skal ganga um svæðið.

Það hefur einnig borið á því að það sé ekki þrifið upp eftir hundana annarsstaðar við gönguleiðir í bænum sem er alls ekki ásættanlegt.

Verum ábyrgir hundaeigendur öll sem eitt og þrífum upp eftir hundana okkar.