• Markus-spiske-484GsKrL5r8-unsplash

Kartöflu- og matjurtargarðar á Höfn

1.6.2022

Garðarnir eru tilbúnir til sáningar eða niðursetningar.

Við Drápsklettsmýri á Höfn býðst íbúum að nýta sér sameiginlegt svæði undir kartöflu-, grænmetis- eða matjurtarrækt. Svæðið er staðsett við slóðann á móti Hvítasunnukirkjunni og er tilbúið til sáningar eða niðursetningar.

Svæðið er óskipt og á ábyrgð notenda að afmarka sér reit. Notendur eru hvattir til að sýna hófsemi hvað reitarstærð varðar og sýna öðrum tillitsemi.

Íbúar eru hvattir til að nota svæðið en notkun þess er gjaldfrjáls.