Líflegir tímar fram undan í Gömlubúð
Veturinn og haustið hefur verið fremur rólegt hvað varðar komu ferðamanna í Gömlubúð. Þrátt fyrir minni umferð hefur starfsemin verið virk og ýmislegt átt sér stað sem hefur vakið athygli og ánægju gesta.
Í vetur var til dæmis sett upp ný jólasýning í Gömlubúð með nokkrum jólamunum frá byggðasafninu. Sýningin vakti mikinn áhuga og gleði meðal gesta á öllum aldri. Sérstaklega var gaman að taka á móti nokkrum skólahópum sem heimsóttu sýninguna yfir hátíðarnar. Nemendur fengu tækifæri til að skoða gamla muni og ræða hvernig jólahald hefur breyst í gegnum árin. Slíkar heimsóknir eru dýrmætur hluti af starfi hússins og skapa lifandi tengingu milli fortíðar og yngri kynslóða sveitarfélagsins.
En nú er undirbúningur fyrir sumarið byrjaður og í sýningarrými Gömlubúðar verður lögð áhersla á lifandi sýningu sem ber heitið „Út úr geymslunni“ – Innsýn í ferli, áherslur og sýningarhönnun“.
Sýningin þróast samhliða rannsóknarvinnu við nýja grunnsýningu safnsins og áherslusýningu um Hálfdán Björnsson frá Kvískerjum og fjölskyldu hans, en þær tvær sýningar munu opna í mars 2027. Fram að því verður rannsókn og hönnun sýninganna miðlað til gesta jafnóðum og verkefnið mótast, með það að markmiði að kalla fram frekari upplýsingar og fróðleik frá íbúum sveitarfélagsins.
Markmiðið er að veita gestum innsýn í lifandi og skapandi ferli þar sem hugmyndir, áherslur og lausnir eru stöðugt endurskoðaðar. Ferlið sjálft verður gert sýnilegt – sýningin mótast jafnt og þétt og gestir fá að fylgjast með þróuninni frá fyrstu hugmynd að fullmótaðri sýningu.
Gamlabúð
er hús samfélagsins og er mikilvægt að íbúar nýti það sem vettvang fyrir
menningu og mannlíf. Stefnt er að því að halda fjölbreytta viðburði í sumar og
eru félagsamtök, hópar og einstaklingar hvattir til að nýta opnunartíma hússins
til að halda kynningar, fundi eða aðra viðburði tengd sinni starfsemi.
Starfsfólk Gömlubúðar tekur vel á móti hugmyndum og samstarfi í gegnum
netfangið gamlabud@hornafjordur.is.

