Menningarverðlaun 2022

18.2.2022

Atvinnu og menningarmálanefnd óskar eftir tillögum að verðlaunahafa Menningarverðlauna 2022 fyrir árið 2021.

Verðlaunin eru veitt einstaklingi, stofnun eða samtökum sem viðurkenning fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar á nýliðnu ári. Hlutverk verðlaunanna er að vera almenn hvatning til eflingar menningar og listastarfs í sveitarfélaginu.

Frestur til tilnefningar er 01. mars 2022 og sendist tilnefningin ásamt rökstuðningi á eyrunh@hornafjordur.is

 

Eyrún Helga Ævarsdóttir

forstöðumaður

Menningarmiðstöð Hornafjarðar