Menntaverðlaun Suðurlands 2022

9.12.2022

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga óska eftir tilnefningum til Menntaverðlauna 2022.

Allir þeir sem tengjast skóla- og/eða menntunarstarfi með einhverjum hætti, s.s. sveitarfélög, skólanefndir, kennarar, starfsfólk skóla og annað áhugafólk um menntun og skólastarf, hafa rétt til þess að tilnefna til verðlaunanna. Tilnefningunni verður að fylgja ítarlegur rökstuðningur.

Þeir sem koma að skóla- eða menntunarstarfi með einhverjum hætti geta hlotið verðlaunin, t.a.m. leikskólar, grunnskólar, framhaldssskólar, símenntunarstöðvar, háskólastofnanir, kennarar, einstaklingar eða hópar, skólaskrifstofur, sveitarfélag/skólanefndir og foreldrafélög.

Tilnefningar skulu berast til Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Austurvegi 56, Selfossi, fyrir miðnætti fimmtudaginn 5. janúar nk. Tilnefningar berist á netfangið menntaverdlaun@sudurland.is

Verðlaunin verða nú veitt í 15. sinn. Veitt verða peningarverðlaun sem nýtast til áframhaldandi menntunarstarfs, sem og formleg viðurkenning. Verðlaunin verða afhent við formlega athöfn í tenglsum við hátíðarfund Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands í janúar .