Menntun fyrir alla á Höfn

6.11.2018

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur setta af stað vinnu um mótun mennastefnu til 2030.

Ný menntastefna mun setja í forgang þær miklu áskoranir sem íslenskt samfélag stendur frammi fyrir í mennta- og velferðarmálum og hafa heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun til hliðsjónar. Leiðarljós nýrrar menntastefnu verður gæðamenntun fyrir alla. Mennta- og menningarmálaráðuneytið leitaði til Evrópumiðstöðvar um nám án aðgreiningar og sérþarfir um að taka út framkvæmd stefnu um menntun án aðgreiningar á Íslandi á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi. Miðstöðin skilaði úttektarskýrslu vorið 2017. Til að vinna að innleiðingu tillagna ráðherra, sem margar hverjar byggja á úttektinni, var stofnaður stýrihópur vorið 2017. Í stýrihópnum sitja nú fulltrúar mennta- og menningarmálaráðuneytis, velferðarráðuneytis, félags- og jafnréttismála og heilbrigðismála, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Kennarasambands Íslands, Skólameistarafélags Íslands, Heimilis og skóla og Háskóla Íslands fyrir hönd kennaramenntastofnana. Á haustmánuðum 2018 verða haldnir 23 fræðslu- og umræðufundir um allt land um menntun fyrir alla, sem lið í mótun nýrrar menntastefnu.

Miðvikudaginn 31. okt sl. fundaði stýrihópurinn með á Höfn með fólki úr Sveitarfélaginu Hornafirði, Djúpavogshreppi og Skaftárhreppi.  Haldnir voru tveir fundir og var sá fyrri með forsvarsmönnum sveitarfélaga og ábyrgðaraðilum málaflokka mennta-, velferðar- og heilbrigðismála. Seinni fundurinn var með fulltrúum kennara og foreldra allra skólastiga ásamt starfsmönnum skóla- félags- og heilbrigðismála í sveitarfélaginu. Samtals tóku þátt um 60 manns.

Markmið fundanna voru:

  •       Að kynna og ræða helstu tillögur er snerta kerfislægt samstarf sem styður við framkvæmd menntunar fyrir alla sem leiðarljós nýrrar menntastefnu.
  •       Að ræða samstarf allra aðila í heimabyggð er koma að menntun fyrir alla og leggja drög að myndun tengsla-og samstarfsnets með tengingu við stýrihóp og aðrar áætlanir stjórnvalda.