Næringarfræðsla - einnig á teams 1. okt. kl. 13:00 og 16:30

Íþróttavika Evrópu

30.9.2025

Elísa Viðarsdóttir næringarfræðingur fjallar um hvernig næring hefur áhrif á heilsu, frammistöðu og vellíðan. Fjölbreytt fræðsla fyrir alla aldurshópa í Íþróttaviku Evrópu.

Kl. 11:00 í Nýheimum, fyrir eldri nemendur Grunnskóla Hornafjarðar

Kl. 13:00 í Ekrusalnum, næring á efri árum fyrir alla áhugasama - einnig á teams.

Kl. 16:30 í Nýheimum, fræðsla um alla um mikilvægi góðrar næringar og hvað skiptir mestu máli í mataræði - einnig á teams.

Þeir sem vilja fylgjast með á teams senda tölvupóst á thorgunnur@hornafjordur.is og viðkomandi verður bætt inn í fundarboð.

Elísa miðlar hagnýtum ráðum byggðum á fræðilegri þekkingu og íþróttareynslu með það að markmið að hjálpa fólki að ná jafnvægi og árangri í gegnum næringu. Elísa er með BSc gráðu í næringarfræði og MSc gráðu í næringar og matvælafræði. Hún gaf út bókina Næringin skapar meistarann árið 2021.

Elísa hefur mikla reynslu úr íþróttum þar sem hún hefur spilað fjöldann allan af landsleikjum fyrir Íslands hönd ásamt því að hafa spilað erlendis og verið fyrirliði í Íslandsmeistaraliði Vals. Elísa hefur einnig mikla reynslu á sviði næringar. Hún hefur haldið fjölda fyrirlestra fyrir einstaklinga, fyrirtæki og íþróttafélög og brennur fyrir að hjálpa fólki að ná tökum á næringu með heilbrigðum hætti.