Notum endurskinsmerki!

Í myrkri sjást gangandi og hjólandi vegfarendur illa þrátt fyrir götulýsingu og ökuljós bifreiða og er notkun endurskinsmerkja þess vegna nauðsynleg

29.11.2022

Í myrkri sjást gangandi og hjólandi vegfarendur illa þrátt fyrir götulýsingu og ökuljós bifreiða og er notkun endurskinsmerkja þess vegna nauðsynleg.

Endurskinsmerkin eiga að vera sýnileg og er best að hafa þau á eftirfarandi stöðum:

Fremst á ermum

Hangandi meðfram hliðum

Á skóm eða neðarlega á buxnaskálmum

Þá virka endurskinsmerkin eins og blikkljós þegar ljós skín á þau. Því fyrr og betur sem ökumenn greina gangandi vegfarendur þeim mun meira er öryggi þeirra sem gangandi eru. Það er staðreynd að ökumenn sjá gangandi vegfarendur með endurskinsmerki fimm sinnum fyrr en ella og því getur notkun endurskinsmerkja skilið milli lífs og dauða.

Endurskin fyrir alla

Allir ættu að finna endurskin við hæfi en til eru margar gerðir og stærðir þ.m.t. endurskinsvesti, límmerki, barmmerki eða hangandi endurskinsmerki. Á mörgum skólatöskum eru endurskinsmerki og eins er gott að líma endurskin á barnavagna, sleða, bakpoka og skíðastafi.

Fullorðnir eiga að sjálfsögðu að vera fyrirmyndir barna og vera með endurskinsmerki á sínum flíkum. Nauðsynlegt er fyrir skokkara að vera í endurskinsvestum eða með gott endurskin á æfingafatnaði þegar æft er utandyra.

Endurskinsmerki er einnig hægt að líma á hunda- og kattaólar og sjálfsagt er að bregða endurskinsborðum um fætur hestsins þegar farið er í reiðtúr.

Tekið af vef Samgöngustofu,

https://www.samgongustofa.is/umferd/fraedsla-og-oryggi/oryggi/endurskin/