• Picture1_1774471257922

Nýjar víddir í kortasjá Hornafjarðar: Tímaflakk, 3D módel og skipulagsmál

25.3.2026

Kortasjá sveitarfélagsins hefur verið uppfærð með fjölmörgum áhugaverðum nýjungum sem auðvelda íbúum að nálgast upplýsingar og skoða umhverfi sitt frá nýju sjónarhorni. 

Helstu nýjungar:

  • Tímaflakk loftmynda - nú er hægt að skoða loftmyndir frá mismunandi árum og bera þær saman. Þetta er einstakt tækifæri til að sjá hvernig byggðin og náttúran hafa breyst í gegnum tíðina.
  • Þrívíddarlíkan og punktaský - hægt er að skoða svæðið í þrívídd (3D). Auk hefðbundins líkans er hægt að skoða þéttbýlið í formi punktaskýjar, sem gefur mjög nákvæma mynd af landslagi og mannvirkjum.
  • Skipulagsgátt - bein tenging er nú við skipulagsgáttina. Íbúar geta því séð skipulagsmál sem eru í kynningu eða vinnslu beint í kortasjánni.
  • Umferðarslys og óhöpp - til að auka gagnsæi og öryggi er nú hægt að skoða staðsetningar og stuttar lýsingar á umferðarslysum og óhöppum á svæðinu.
  • Framkvæmdir og umferðartruflanir - nú er auðveldara en áður að fylgjast með bæjarbragnum. Í kortasjánni má sjá:
    • Verkefni á samþykktri framkvæmdaráætlun.
    • Upplýsingar um hvar vænta má truflana á umferð vegna framkvæmda hverju sinni.

Við hvetjum alla til að kynna sér þessi nýju verkfæri á https://www.map.is/hofn/