• Birna_staff-mynd

Nýr starfsmaður á Byggðasafni

25.2.2026

Menningarmiðstöð Hornafjarðar hefur ráðið Birnu Jódísi Magnúsdóttur tímabundið til starfa í 50 % starfshlutfall við Byggðasafn Austur-Skaftafellssýslu. Með ráðningu hennar og Hönnu Dísar Whitehead er því er búið að fylla 100 % stöðugildi við safnið.

Ráðningin markar mikilvægan áfanga í starfseminni, enda hefur verið unnið markvisst að því að styrkja innviði safnsins á undanförnum misserum. Báðar eru þær ráðnar tímabundið fram yfir sýningaropnun nýrrar sýningar í mars 2027.

Birna mun sinna fjölbreyttum verkefnum en megináhersla hennar verður á skráningu muna í geymslu safnsins til birtingar á Sarpi. Skráning og faglegt utanumhald safnmuna er ein af undirstöðum safnastarfs. Með skráningu er tryggt að upplýsingar um uppruna, sögu og ástand muna varðveitist og að gripir séu aðgengilegir til rannsókna, sýningagerðar og fræðslu.

Birna_og_hanna

Nýverið fékk safnið jafnframt góða heimsókn þegar forvörðurinn Nathalie Jacqueminet kom og fór yfir geymslumál með starfsfólki. Sú yfirferð var bæði afar fræðandi og skemmtileg og veitti dýrmæta innsýn í hvernig megi bæta aðstæður, verklag og langtímavarðveislu safnkostar. Heimsóknin styrkir enn frekar þá vinnu sem nú stendur yfir við að efla skráningu og umhirðu muna og fellur vel að áherslum Birnu í hennar starfi.

Á sama tíma hefur verið hafist handa við nýja sýningu, „Út úr geymslunni“ í Gömlubúð. Þar gefst gestum kostur á að skyggnast á bak við tjöldin og kynnast því ferli sem liggur að baki uppbyggingu nýrrar grunnsýningar safnsins sem mun opna í Gömlubúð í mars 2027.

Byggðasafn Austur-Skaftafellssýslu gegnir mikilvægu hlutverki í menningarlífi svæðisins. Með auknum slagkrafti og áherslu á faglega umhirðu og metnaðarfulla sýningagerð er safnið vel í stakk búið til að takast á við komandi verkefni.

Starfsfólk Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar býður Birnu Jódísi Magnúsdóttur hjartanlega velkomna til starfa og hlakkar til samstarfsins. Ljóst er að koma hennar mun styrkja safnið enn frekar og styðja við áframhaldandi uppbyggingu og þróun í þágu samfélagsins og menningararfs svæðisins.