Nýr vefur Sveitarfélagsins Hornafjarðar í prófun
Nýr vefur Sveitarfélagsins Hornafjarðar er nú aðgengilegur íbúum og öðrum áhugasömum til skoðunar
Hægt er að nálgast vefinn á slóðinni hornafjordur.is.stefna.cloud
Vefurinn er enn í vinnslu og því eru íbúar hvattir til að skoða hann og senda inn ábendingar ef þeir telja að bæta megi efni síðunnar, framsetningu eða aðgengi. Ábendingum er hægt að koma á framfæri í gegnum nýja vefinn.
Markmiðið með nýjum vef er að gera upplýsingar frá sveitarfélaginu aðgengilegri íbúum og öðrum.

