Nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir Lóu - nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina.
Hlutverk styrkjanna:
- Auka við nýsköpun á landsbyggðinni
 - Styðja við atvinnulíf og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni
 - Stuðla að uppbyggingu vistkerfis fyrir nýsköpunarstarfsemi og frumkvöðla starf á forsendum svæðanna.
 
Um styrkina:
- Styrkjunum er úthlutað til nýsköpunarverkefna utan höfuðborgarsvæðisins
 - Styrkjum er úthlutað til árs í senn, hvert verkefni getur hlotið að hámarki 20 milljóna króna styrk
 
- Matshópur metur umsóknir í samræmi við nýsköpunarstefnu og áherslur stjórnvalda
 
Heildarfjárhæð styrkja Lóu árið 2021 er 100 milljónir króna.
Umsóknarfrestur er til 09. mars 2021. Umsóknum er skilað rafrænt á eyðublaðavef stjórnarráðsins.

