Nýtt kerfi fyrir gæludýr og uppfærð gjöld frá 2026
NÝTT KERFI FYRIR GÆLUDÝRAEIGENDUR - Icepets
Sveitarfélagið hefur tekið í notkun nýtt kerfi fyrir skráningu og umsýslu gæludýra, sem ætlað er að bæta þjónustu, auka yfirsýn og gera eigendum auðveldara að nálgast og uppfæra upplýsingar. Í kerfinu geta eigendur haft allar upplýsingar um gæludýr sín á einum stað, þar á meðal skráningar, skjöl og breytingar.
Hægt er að nálgast kerfið hér, en einnig í gegnum Íbúagátt sveitarfélagsins sem vísar notendum áfram í nýja kerfið.
Allar eldri skráningar hafa verið fluttar yfir í nýja kerfið. Hins vegar var ekki hægt að flytja sjálfkrafa myndir af dýrum eða áður innsend skjöl. Því eru gæludýraeigendur hvattir til að skrá sig inn og bæta við mynd af dýrinu sínu ásamt viðeigandi gögnum.
Kerfið býður einnig upp á nýja virkni, svo sem „fundið og týnt“ lausn, sem getur hjálpað til við að finna dýr ef þau týnast, auk bættrar samskipta milli eigenda og sveitarfélagsins.
Nánari upplýsingar um notkun kerfisins má finna hér: https://www.icepets.is/is/page/pet-owner
UPPFÆRÐ GJÖLD FRÁ 2026
Sveitarfélagið hefur uppfært gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald frá og með árinu 2026.
Fyrir hundaeigendur:
Eigendur hunda sem hafa lokið hlýðninámskeiði hjá viðurkenndum þjálfara geta fengið 50% afslátt af árlegu leyfisgjaldi gegn framvísun staðfestingar.
Hundar sem eru notaðir í björgunarstörfum eða eru vottaðir aðstoðarhundar eru undanþegnir árlegu leyfisgjaldi, að uppfylltum skilyrðum og með viðeigandi gögnum.
Fyrir kattaeigendur:
Veittur er 50% afsláttur af árlegu leyfisgjaldi ef staðfest er að köttur hafi verið geldur.
Afslættir gilda svo lengi sem dýrið er skráð hjá sveitarfélaginu og viðeigandi gögn eru í gildi. Til að fá afslátt þarf að hlaða inn viðeigandi staðfestingum í nýja kerfið. Við hvetjum hundaeigendur til að nýta sér þjálfunarnámskeið, bæði til að stuðla að ábyrgri umgengni og til að njóta þeirra kjara sem felast í uppfærðri gjaldskrá.
Breytingar á útgáfu reikninga
Áður voru reikningar fyrir gæludýrahald yfirleitt gefnir út undir lok árs, til dæmis í október 2025. Með uppfærðri gjaldskrá verða reikningar framvegis að jafnaði gefnir út í upphafi árs. Hins vegar, vegna innleiðingar nýja kerfisins, verða reikningar fyrir árið 2026 gefnir út í apríl. Gjaldfrestur verður einn mánuður.
Hundagerði og sameiginleg ábyrgð
Sveitarfélagið mun halda áfram að bæta aðstöðu í hundagerðinu sem opnað var á síðasta ári. Á sama tíma viljum við minna alla hundaeigendur á að ganga vel um og taka upp eftir hunda sína, bæði á gönguleiðum og í hundagerðinu.
Takk fyrir að taka þátt í að skapa ábyrgt og gæludýravænt samfélag.

