• Sveitarfélagið Hornafjörður

Ölduslóð í Öræfum: Svínafell – Freysnes – Skaftafell

13.6.2025

Þriðjudaginn 17.júní verður formleg opnun göngu- og hjólastígsins Ölduslóðar sem liggur frá Svínafelli í gegnum Freysnes og að Skaftafelli. Gönguleiðin er hluti af Jöklaleið sem gerð er í áföngum sunnan Vatnajökuls í Sveitarfélaginu Hornafirði. Þar er hægt að njóta útivistar og náttúrufegurðar fjarri umferðinni á þjóðveginum.

Athöfnin hefst í Freysnesi kl. 12:30. Komið verður saman við Hótel Skaftafell í Freysnesi, gengið að göngustígnum þar sem gönguleiðin verður kynnt og þar verður flutt þakkarávarp til þeirra sem lögðu hönd á plóg við verkefnið. Næst verður Ölduslóðin gengin inn að Svínafelli og haldið áfram að hátíðarsvæði austan við Hálsaskersgarð, þar sem 17.júní hátíðahöld UMFÖ fara fram.

Gert er ráð fyrir að koma að hátíðarsvæðinu í Svínafelli um kl. 14. Þar fer fram hefðbundin 17. júní dagskrá með leikjum og loks verður boðið upp á léttar veitingar í tilefni dagsins.

Verið velkomin að fagna með okkur þennan dag og taka þátt í dagskránni, bæði þjóðhátíðardeginum og opnun Ölduslóðar.

Skjamynd-2025-06-13-144940