Ómannað loftfar gert út frá Hornafirði í sumar
Íbúar á Hornafirði kunna að verða varir við ómannað loftfar sem gert verður út frá Hornafjarðarflugvelli næstu mánuði.
Um er að ræða samstarfsverkefni Landhelgisgæslunnar og Siglingaöryggisstofnunar Evrópu, EMSA. Loftfarið verður notað til eftirlits á hafsvæðinu umhverfis Ísland og flýgur eingöngu yfir hafi. Tilgangurinn er að styðja við löggæslu, leit og björgun, auk mengunareftirlits á sjó. Verkefnið á að styrkja yfirsýn Landhelgisgæslunnar og auka öryggi sjófarenda.
Gert er ráð fyrir að verkefnið standi fram í september.

