Opin kynningarfundur um nýtt miðbæjarsvæði á Höfn – þriðjudaginn 24. mars
Fasteigna- og þróunarfélagið Landsbyggð hefur undanfarna mánuði unnið að þróun og skipulagningu á nýju miðbæjarsvæði á Höfn, í samræmi við viljayfirlýsingu sem undirrituð var á milli Landsbyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar síðastliðið haust.
Verkefnið tekur nú smám saman á sig skýrari mynd og af því tilefni hafa fultrúar frá Landsbyggð boðað til opins kynningarfundar á þriðjudaginn 24. mars kl. 17:00 í Nýheimum. Þar verður farið yfir stöðu verksins, nýjar hugmyndir og útlitsmyndir sýndar og tækifæri gefið til að spyrja spurninga og koma ábendingum á framfæri.
Dagsetning: Þriðjudaginn 24. mars
Tími: kl.
17:00
Staður: Nýheimar
Við hvetjum áhugasama um að mæta og taka þátt í mótun miðbæjarsvæðisins.

