Samtal sveitarfélagsins við atvinnulífið
Í
marsmánuði voru haldnir fjórir samráðsfundir með stærstu atvinnugreinum sveitarfélagsins:
Landbúnaði, sjávarútvegi, ferðaþjónustu ásamt verslun og þjónustu. Nejra
Mesetovic, byggða- og nýsköpunarfulltrúi Sveitarfélagsins Hornafjarðar stýrði
fundunum og kynnti um leið hvaða hlutverki hún gegnir.
Byggða- og
nýsköpunarfulltrúi vinnur að því að efla samstarf við atvinnulífið og styðja
við nýsköpun og atvinnuþróun. Fulltrúinn er til staðar fyrir einstaklinga,
frumkvöðla og fyrirtæki sem vilja ráðgjöf, tengingar eða leiðsögn við þróun
hugmynda og verkefna.
Samanlagt mættu rúmlega 60 manns á fundina sem haldnir voru á Hrollaugsstöðum og í Nýheimum, ásamt því að vera sóttir í streymi.
Markmiðið með fundunum var að ná beinu samtali við atvinnulífið og kortleggja þarfir, hindranir og tækifæri þess. Fjölmargar ábendingar komu fram á fundunum og samtalið var afar gagnlegt. Hér verður farið yfir helstu atriði en þó er listinn langt frá því að vera tæmandi.
Ýmsar áhyggjur komu fram á fundi landbúnaðarins. Helstu hindranir sem taldar voru upp voru hátt jarðaverð, skortur á fólki og fjármagni, flutningskostnaður, erfiðleikar í nýliðun, fjarlægð við þjónustuaðila og ójafnvægi milli þarfa náttúruverndar og landbúnaðar. Þrátt fyrir það kom einnig fram að tækifæri geta falist í aukinni framleiðslu, fullvinnslu afurða, betri markaðssetningu og samvinnu við frumkvöðla og ferðaþjónustu.
Staða sjávarútvegs í Hornafirði er stöðug en greinin er þó undir þrýstingi aukins kostnaðar, einkum veiði- og kolefnisgjalda. Helstu áskoranir sem nefndar voru eru innviðir hafnarinnar, dýpkun Óssins, aðgengi að vinnuafli og ímynd starfsgreinarinnar. Aðgengi að iðnmenntun í heimabyggð myndi efla greinina verulega og tækifæri eru í nýsköpun, samstarfi við ferðaþjónustu og ímyndarsköpun.
Á fundi um verslun og þjónustu mættu aðallega aðilar í verslunarrekstri. Rætt var um rekstrargrundvöll verslana á Höfn, áskoranir í flutningskostnaði og samkeppni við netverslun. Tækifæri felast í aukinni þjónustu við ferðafólk, viðhorfsbreytingu íbúa gagnvart verslun í heimabyggð og aukinni nýtingu nærsamfélagsins á þeirri verslun og þjónustu sem stendur til boða.
Aðilar í ferðaþjónustu lýstu stöðu greinarinnar sterkri en helstu áhyggjur beinast að breytingum á ákvarðanatöku og regluverki sem greinin býr við. Upplifunin er sú að fjarlægðir á milli rekstraraðila og stofnana séu að aukast og valda skilningsleysi á þörfum íbúasamfélagsins í sveitarfélaginu. Húsnæðisskortur og veik innviðauppbygging í dreifbýli, til að mynda í heilbrigðisþjónustu og verslun var rædd. Talað var um tækifæri sem felast í hæglætisferðamennsku, markaðssetningu og aukinni þátttöku heimamanna.
Ljóst er að óteljandi spennandi tækifæri eru til staðar hér í atvinnulífinu, ásamt áskorunum. Við þökkum öllum sem að tóku þátt á fundunum, þar sem þessar upplýsingar verða mikilvægt veganesti inní komandi mánuði fyrir starfsmenn sveitarfélagsins og sveitarstjórn.
Hægt er að hafa samband við byggða- og nýsköpunarfulltrúa á netfanginu byggd@hornafjordur.is

