Samvinna barnanna vegna

26.4.2023

Fundur foreldra um farsæld barna

Þriðjudaginn 2. maí verður fundur fyrir foreldra og forsjáraðila í Sveitarfélaginu Hornafirði með Heimili og skóla. Fundurinn verður í Nýheimum frá 20:00-21:15.

Hvernig get ég sem foreldri lagt mitt af mörkum til að auka vellíðan barnsins míns og skiptir samvinna foreldra máli þegar kemur að farsæld barnanna okkar? Samheldni og samstarf foreldra hefur jákvæð áhrif á velferð barna; skólabrag og líðan nemenda, foreldra og kennara, svo ekki sé minnst á árangur í leik og námi.

Við hvetjum öll til að mæta á fundinn.

Mikilvægt er að skrá sig ef horfa á í streymi: https://forms.gle/Bd7Rnvw9JNnxJHxx7