Samvinna barnanna vegna

27.4.2023

Þriðjudaginn 2. maí kl 20:00 – 21:15 verður fræðslufundur fyrir foreldra og forsjáraðilla á Hornafirði með Heimili og Skóla.

Hvernig get ég sem foreldri lagt mitt að mörkum til að auka vellíðan barnsins míns og skiptir samvinna foreldra máli þegar kemur að farsæld barnanna okkar? Samheldni og samstarf foreldra hefur jákvæð áhrif á velferð barna; skólabrag og líðan nemenda, foreldra og kennara, svo ekki sé minnst á árangur í leik og námi.

Við hvetjum öll til að mæta á fundinn.

Mikilvægt er að skrá sig ef horfa á í streymi: https://forms.gle/Bd7Rnvw9JNnxJHxx7