Seinkun á breytingu sorptunna

4.3.2024

Sveitarfélagið vill uppfæra íbúa um fyrirhugaðar breytingar á sorptunnukerfinu sem er í innleiðingu. Upphaflega var stefnd að skipta út sorptunnum í febrúar og koma á nýju flokkunarkerfi fyrir heimilissorp. Vegna veðurs síðustu vikurnar verður seinkun á afhendingu nýrra sorptunna en nauðsynlegt er að fá nokkrar samfellda þurra daga til að skipta út sorptunnum og merkja eldri tunnur upp á nýtt.

Af þessum ástæðum höfum við ákveðið að fresta breytingunum þangað til núna í mars. Teymið hjá Hringrás mun sjá um þetta ferli. Við erum þakklát fyrir þolinmæði  og skilning íbúa meðan á þessum breytingum stendur.