Sigurjón Andrésson ráðinn bæjarstjóri

9.6.2022

Sigurjón Andrésson ráðgjafi hjá Góðum samskiptum og verkefnastjóri hjá Sveitarfélaginu Ölfusi ráðinn bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Bæjarráð, í umboði bæjarstjórnar, samþykkti í dag ráðningu Sigurjóns Andréssonar og mun hann hefja störf 1. júlí nk. Sigurjón er 52 ára og búsettur í Hvítholti í Flóahreppi. Hann hefur undanfarið starfað sem ráðgjafi hjá Góðum samskiptum í Reykjavík ásamt því að vera verkefnastjóri flóttamanna hjá Sveitarfélaginu Ölfusi. Sigurjón situr í sveitarstjórn Flóahrepps en mun segja sig frá þeim störfum í kjölfar ráðningarinnar. 

Sigurjón starfaði lengi vel sem stjórnandi hjá tryggingafélaginu Sjóvá, lengst af við kynningar- og markaðsmál ásamt öryggis- og forvarnamálum. Þá var hann framkvæmdastjóri markaðsmála hjá BL bílaumboði.

Sigurjón er iðnmenntaður í grunninn með diploma í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands, alþjóðlega gráðu í verkefnastjórnun frá Bandaríkjunum og meistaragráðu í viðskiptafræði (MBA) frá Háskólanum í Reykjavík. 

Sigurjón býr sem stendur ásamt fjölskyldu sinni í Hvítholti í Flóahreppi, rétt austan við Selfoss. Hann er giftur Margréti Söru Guðjónsdóttur kennara við Menntaskólann í Reykjavík og eiga þau tvær dætur, 22 og 24 ára. 

Eyrún Fríða Árnadóttir formaður bæjarráðs og Sigurjón Andrésson við undirritun ráðningarsamnings hans.

Sigurjón segist vera "geysilega spenntur fyrir nýjum áskorunum. Það er mikill metnaður í því fólki sem ég hef þegar hitt og veit að það eru mikil tækifæri fram undan hjá sveitarfélaginu. Ég hlakka til að flytja austur og kynnast samfélaginu betur og mun leggja mig allan fram í mínum störfum fyrir sveitarfélagið.“

Það er okkur mikil ánægja að fá Sigurjón til liðs við okkur,  þar fer vandaður einstaklingur sem skilur lítið samfélag eins og okkar. Hann kemur að borðinu með mikla þekkingu og kraft sem verða mun ein af forsendum þess að sá vilji sem birtist í nýafstöðnum kosningum nái fram að ganga. Við bjóðum Sigurjón velkominn til starfa og hlökkum til samstarfsins við hann.