Skráning í vinnuskólann sumarið 2025 er hafin

6.5.2025

Ungmenni sem fædd eru 2009 – 2012 geta sótt um vinnu í vinnuskólanum. 

Boðið er upp á vinnu fyrir 2009 – 2011 árgangana frá kl. 9-12 og eða kl. 13-16, en 2012 árganginn frá kl. 9 – 12.

Vinnuskólinn stendur í u.þ.b. 8 vikur. Hefst 3. júní og lýkur 25. júlí.

Til að sækja um vinnu er best að fara inn á íbúagátt, fara inn á umsóknir og sækja um vinnu undir vinnuskólinn. Mikilvægt er að skrá allar upplýsingar.

Einnig er hægt að senda tölvupóst á emilmoravek@hornafjordur.is þar sem fram koma upplýsingar um nafn ungmennis, kennitala, heimilisfang, nafn foreldra, símanúmer, tölvupóstfang, bankaupplýsingar barns og hvenær viðkomandi vill byrja að vinna (tímabil) og og hvaða vinnutíma er óskað eftir.

Við hvetjum alla sem hafa aldur til að sækja um í vinnuskólanum.

Umsóknarfrestur er til 30. maí n.k.

Allar frekari upplýsingum gefur Emil Örn Morávek, s. 470-8028 emilmoravek@hornafjordur.is