Sölvi Tryggvason - Á eigin skinni

26.2.2019

Sveitarfélagið Hornafjörður – Heilsueflandi samfélag auglýsir opinn fyrirlestur í Nýheimum þann 28. febrúar kl. 20:00.

Fyrirlesarinn er Sölvi Tryggvason en hann gaf nýverið út bókina: Á Eigin Skinni, sem er afrakstur áratugsvegferðar hans um allt sem snýr að heilsu. Eftir að hafa sjálfur misst heilsuna neyddist Sölvi til að gerast sérfræðingur í eigin heilsu og hefur á undanförnum árum lært af framúrskarandi fólki um allan heim, auk þess að gera endalaust af tilraunum á sjálfum sér þegar kemur að kælingu, föstum, næringu, hreyfingu, bætiefnum og fleiru og fleiru.

Á fyrirlestrinum verður farið yfir lykilatriði þegar kemur að næringu, hreyfingu, hugleiðslu og öndun, föstum og leiðir til að bæta svefn, heilastarfsemi og draga úr bólgum og ójafnvægi í líkamskerfinu.

Hvetjum við alla bæjarbúa sem heimangengt hafa að mæta á þennan fyrirlestur.